Uppskriftir

Kökupinnar Kötlu

2019.07.12.
by Katla

Innihald

1 pakki Kötlu Súkkulaðikökublanda
275 ml kalt vatn
80 ml olía
3 egg
15 viðar íspinnar
150 gr súkkulaðibitar
2 tsk smjör eða jurtafeiti

Aðferð

1. Hitaðu ofninn í 180 gráður.
2. Taktu meðalstóra bökunarplötu og breiddu bökunarfilmu yfir. Smyrja plötuna með smjöri eða öðru feiti. Baka skúffuköku eins og er leiðbeint um á pakkningu í um 18-20 mínútur. Kælið kökuna í um 60-90 mínútur.
3. Skerðu út um 15 rétthyrndar kökur. Æskilegt er að skera 5x3. Setjið íspinna varlega í hverja kökusneið. Frysta í 30 mínútur.
4. Setja súkkulaðibita í örbylgjuofn ásamt 2 tsk af smjöri eða jurtafeiti. Stillið á háan hita og hrærið reglulega í blöndunni. Hámarkstími er 1 mínúta, ef súkkulaðið er ekki bráðnað stillið þá 5 sek í hvert sinn þar á eftir til að forðast að súkkulaðið brenni.
5. Dýfið efri hluta af kökuíspinnanum í blönduna og skreytið.
6. Látið þorna á bökunarpappír í um 60 mínútur þar til súkkulaðið er storknað.