Uppskriftir

Súkkulaði Trufflur

2019.07.11.
by Katla
Trufflur

Uppskrift gefur ca. 50 stk:

Brjótið 300 gr. dökkt súkkulaði (70% eða suðusúkkulaði) í litla bita og setjið í skál
50 gr. smjör
300 ml. rjóma 

og hellið yfir súkkulaðið. Hrærið þar til súkkulaðið hefur bráðnað. Fyrir sætari trufflur bætið við smá Kötlu púðursykri. Eins má nota Kötlu dropana eftir því hvaða bragði er leitast eftir (vanillu, romm, sítrónu, appelsínu, piparmyntu, möndlu)

Setjið í kæli í a.m.k. klukkutíma. Gerið litlar kúlur úr deiginu og veltið upp úr Kötlu Eðalkakói. Trufflurnar má síðan skreyta með því sem ykkur þykir gott og fallegt (hnetur, þurrkuð ber ofl.) Geymið í kæli og látið svo standa á borði í 30-60 mínútur áður en borið er fram.