1.
|
Setjið púðursykur, smjör og sykur í skál og hrærið þar til blandan verður létt og loftmikil. |
2.
|
Þá skal bæta egginu við og hræra saman. |
3.
|
Því næst bætið við vanilludropum við. |
4.
|
Blandið saman hveiti, matarsóda og salti og blandið því saman við deigið, hrærið eins lítið og þið komist upp með. Hættið að hræra um leið og allt hveitið hefur blandast saman við. |
5.
|
Skerið niður súkkulaði og blandið því saman við deigið með sleif eða sleikju. |
6.
|
Setjið deigið inn í ísskáp og kælið í 30 mínútur. |
7.
|
Kveikið á ofninum og stillið á 170°C og undir + yfir hita. |
8.
|
Útbúið kúlur úr deiginu, 1 kúfuð msk af deigi er ein kaka, raðið þeim á ofnplötu með góðu millibili og bakið í 8-10 mín. |