Neytendavara

Á síðustu árum hafa neysluvenjur Íslendinga þróast í átt að einfaldari réttum og fljótlegri matreiðsluaðferðum. Katla fylgist vel með þessari þróun og eykur sífellt úrvalið af framleiðsluvörum sínum. Til að uppfylla breyttar kröfur neytenda hafa nýjar Kötlu vörur komið inn á markaðinn á síðustu misserum sem fengið hafa góðar viðtökur. Sem dæmi um slíkar vörur má nefna Hrista og baka Vöfflumix og pönnukökumix, Súkkulaðikökumix, Smákökudeig og Baunasúpugrunn.

Katla hefur alla tíð lagt mikið upp úr gæðum sem Íslendingar þekkja enda eru neytendavörur Kötlu til sölu í flestum matvöruverslunum landsins. Neytendavörusvið fyrirtækisins þjónustar viðskiptavini sína með reglubundnum heimsóknum og tryggir þannig að vörur fyrirtækisins séu ætíð til staðar fyrir neytendur. BRC vottun Kötlu tryggir öguð og vönduð vinnubrögð og fullkominn rekjanleika á öllum vörum fyrirtækisins.  Jafnframt tryggir sú vottun að eingöngu eru notuð hráefni í hæsta gæðaflokki við alla framleiðslu og sölu.

Eva Dís Sigrúnardóttir Sala/neytendur

+354 510 4430
neytendur@katla.is

Send email