
| 120 gr púðusykur frá Kötlu | |
| 400 gr döðlur | |
| 250 gr smjör | |
| 3 bollar rice krispies | |
| 200 gr súkkulaði (ljóst eða dökkt) |
| 1. | Setjið döðlur, smjör og púðusykur saman í pott og látið sjóða þar til döðlurnar eru orðnar eins og karamella. |
| 2. | Takið blönduna af hellunni og blandið við Rice krispies. |
| 3. | Blandan er látin í form með bökunarpappír í botninn, þjappið blöndunni vel og hellið svo bráðnu súkkulaði yfir og setjið inn í ískáp þar til súkkulaðið er storknað. |
| 4. | Næst er döðugottið tekið af plötunni og skorið í smáa bita og borið fram til þess að njóta |