Uppskriftir

Kanilsnúðar

2019.10.03.
by Katla

Uppskrift

150 gr smjör eða smjörlíki
5 dl mjólk
50 gr (1 pakki) ger
1 dl sykur
1/2 tsk salt
2 tsk kardimommur
850 gr hveiti

Aðferð

1. Bræðið smjörið í potti.
2. Bætið mjólkinni í pottinn og hitið upp í 37°.
3. Setjið gerið í skál og hellið vökvanum yfir. Leyfið gerinu aðeins að taka sig í nokkrar mínútur.
4. Bætið sykri, salti, kardimommu og hveiti (ekki byrja á öllu hveitinu heldur bætið frekar við seinna) út í og hnoðið deigið vel í ca 5 mínútur með hnoðara á hrærivél eða í ca 10 mínútur í höndunum.
5. Breiðið viskastykki yfir skálina og látið deigið hefast á hlýjum stað í ca 30 mínútur.
6. Hnoðið degið á mjöluðu borði og skiptið því niður í 4 hluta.
7. Fletjið hvern hluta út í aflanga köku (þannig að deigið verði í laginu eins og skúffukaka).
8. Hrærið saman fyllingunni (ég geri oftast tvöfalda uppskrift af fyllingunni) og breiðið yfir deigið.
9. Snúið deiginu upp í rúllu og skerið í sneiðar (hver rúlla í ca 10 sneiðar).
10. Leggið hverja sneið í möffinsform og látið hefast undir viskastykki í 40 mínútur.
11. Penslið snúðana með upphrærðu eggi og stráið perlusykri yfir þá.
12. Bakið í miðjum ofni við 225 gráður í 5-8 mínútur.

Fylling

100 gr smjör eða smjörlíki við stofuhita
1 dl sykur
2 msk kanill frá Kötlu

Krem

2 msk mjúkt smjör
85 g mjúk­ur rjóma­ost­ur
½ bolli flór­syk­ur frá Kötlu
⅛ te­skeið Kötlu vanillu­drop­ar
1-2 mat­skeiðar mjólk

Þetta er stór uppskrift, um 40 snúðar, og er gott að taka frá hluta og setja í frysti um leið og þeir koma úr ofninum svo þeir geymist sem best og þorni ekki.

Snúðarnir eru bestir nýbakaðir og geymast ekki vel nema í frysti og mælum við einstaklega vel með að prófa vanillukremið á snúðana!