1.
|
Hitið ofninn í 175°C og spreyið kleinuhringjabökunarform með olíu. |
2.
|
Sigtið hveiti, sykur, lyftiduft, kanil, múskat og salt saman í skál. |
3.
|
Hrærið saman í annarri skál; egg, súrmjólk, brætt smjör, vanilludropa. Hellið blöndunni saman við þurrefnin og hrærið saman í deig. Gætið þess að hræra deigið ekki of mikið heldur bara hræra þar til það er slétt og laust við kekki. |
4.
|
Setjið deigið í plastpoka og klippið smá af öðru horninu. Sprautið deiginu í kleinuhringjamótið og fyllið það að þremur fjórðu með deigi. Bakið í 15-17 mínútur - athugið hvort kleinuhringirnir eru fullbakaðir með því að stinga í þá með bökunarprjóni (eða hníf). Ef bökunarprjónninn kemur hreinn upp eru kleinuhringirnir tilbúnir. Látið kleinuhringina kólna í forminu í 5 mínútur áður en þeim er hvolft úr. |