Uppskriftir

Kanilsykurhúðaðir kleinuhringir (Uppskrift frá Barefoot Contessa/Ljúfmeti og lekkerheit)

2019.07.11.
by Katla
Kleinuhringir

Uppskrift:

2,5 dl hveiti
1,5 dl sykur
1 tsk Kötlu lyftiduft
½ tsk kanill
¼ tsk múskat
¼ tsk salt
1 stórt egg
1 dl súrmjólk
2 msk smjör, brætt
1 tsk Kötlu vanilludropar

Aðferð:

1. Hitið ofninn í 175°C og spreyið kleinuhringjabökunarform með olíu.
2. Sigtið hveiti, sykur, lyftiduft, kanil, múskat og salt saman í skál.
3. Hrærið saman í annarri skál; egg, súrmjólk, brætt smjör, vanilludropa. Hellið blöndunni saman við þurrefnin og hrærið saman í deig. Gætið þess að hræra deigið ekki of mikið heldur bara hræra þar til það er slétt og laust við kekki.
4. Setjið deigið í plastpoka og klippið smá af öðru horninu. Sprautið deiginu í kleinuhringjamótið og fyllið það að þremur fjórðu með deigi. Bakið í 15-17 mínútur - athugið hvort kleinuhringirnir eru fullbakaðir með því að stinga í þá með bökunarprjóni (eða hníf). Ef bökunarprjónninn kemur hreinn upp eru kleinuhringirnir tilbúnir. Látið kleinuhringina kólna í forminu í 5 mínútur áður en þeim er hvolft úr.

Kanilsykurhúðun:

4 msk smjör, brætt
1 dl Kötlu sykur
1 tsk kanill

Aðferð:

1. Hrærið saman sykri og kanil. Bræðið smjörið.
2. Penslið heita kleinuhringina með bræddu smjöri og veltið þeim síðan upp úr kanilsykrinum.
3. Berið kleinuhringina heita fram. Gott að bera fram með vanilluís.