Uppskriftir

Sæt kartöflumús með pekanhnetukrönsi

2020.05.19.
by Katla

Sætkartöflumús með pekanhnetukrönsi

3 sætar kartöflur
100 gr. hrásykur
2 egg
75 gr. mjúkt smjör
1 dl mjólk
1 tsk Kötlu vanilludropar
200 gr. Kötlu púðursykur
100 gr. saxaðar pekanhnetur
40 gr. hveiti
75 gr. brætt smjör

Leiðbeiningar

1. Forhitið ofninn í 175 gráður
2. Sjóðið sætu kartöflurnar og flysjið
3. Skerið kartöflurnar í bita, setjið í skál með eggjum , smjöri, mjólk og vanilludropum. Stappið vel saman og færið yfir í eldfast mót.
4. Blandið saman púðursykri, pekanhnetum og hveiti, hellið bræddu smjöri yfir blönduna.
5. Hrærið hnetublönduna saman og dreifið yfir kartöflustöppuna.
6. Bakið í 30 mínutur og njótið vel!