
| 3 egg | |
| 1,5 dl sykur | |
| 2 msk Kötlu kakó | |
| 1 tsk vanillusykur frá Kötlu | |
| 3 msk hveiti | |
| 4 msk kartöflumjöl (1/2 dl) | |
| 1 tsk lyftiduft / matarsódi frá Kötlu |
| 1. | Hitið ofninn upp í 200°C |
| 2. | Þeytið eggin þangað til þau eru orðin að létt og froðukennd bætið svo sykrinum varlega saman við |
| 3. | Sigtið þurrefnin og blandið þeim rólega við eggja- og sykur hræruna |
| 4. | Hellið blöndunni í ofnskúffu með smjörpappír og dreifið í þunnt lag, passið að miðjan verði ekki of þykkt og kantarnir of þunnir |
| 5. | Bakið neðarlega í ofninum í 5-10 mínútur |
| 6. | Þegar kakan kemur úr ofninum hvolfið henni yfir viskastykki sem þið eruð búin að strá sykri yfir (óþarfi að spara sykurinn) |
| 100 gr smjörlíki | |
| 3 dl Kötlu flórsykur | |
| 1-2 tsk Kötlu vanilludropar |
| 1. | Þeytið smjörlíkið, flórsykurinn og vanilludropana vel saman. |
| 2. | Þeytið þangað til kremið er orðið hvítt (það getur tekið nokkrar mínútur.) |
| 3. | Ef kremið er of þykkt, þá bætið við 1-3 msk af vatni og það verður mýkra og auðveldara að smyrja því á kökuna. |
| 4. | Þegar kremið er komið á skal rúlla kökunni upp. Gott er að nota viskastykkið til að hjálpa ykkur. Voila, góð og einföld kaka tilbúin á ca 30 mínútum. |