1/4 bolli grófir eða fínir hafrar, eftir smekk | |
1/3 bolli undanrenna (má vera önnur mjólk) | |
1/4 bolli grísk jógúrt (helst lífræn en bæði í lagi) | |
1-1 og 1/2 tsk Chia fræ | |
1 msk Kötlu Kakóduft | |
1 tsk hunang (má sleppa eða jafnvel nota annað sætuefni í staðinn) | |
1/4 bolli bananasneiðar eða eftir smekk (nóg til þess að fylla krukkuna) |
1. | Hráefnin öll sett í krukkuna |
2. | Lokið er svo sett á krukkuna og hún er hrist þar til allt er vel blandað saman. |
3. | Látið standa í ísskáp yfir nótt og um morguninn er kominn hollur og góður morgunmatur sem hægt er að grípa með sér á hraðferð! |
Þess má geta að blandan geymist í um það bil viku inni í ísskáp án banana, en með þeim geymist hún í 1–2 daga.
Athugaðu að hlutföllin hér að ofan eru einungis til viðmiðunar, það má leika sér með þetta alveg eins og maður vill, um að gera að prófa sig áfram.