Uppskriftir

Heitt myntu kakó

2019.11.08.
by Katla

Uppskrift

2 msk Kötlu eðalkakaó
1 til 2 msk sykur (fer eftir því hversu sætt þú vilt það
Klípa af Kötlu matarsalti
2.5 dl mjólk
1/8 tsk Kötlu piparmyntu dropar

Aðferð

1. Hrærið saman kakaó, sykri og salti og u.þ.b. 2 msk af mjólk í litlum potti yfir miðlungshita þar til kakaóið og sykurinn hafa leysts upp.
2. Hrærið restinni af mjólkinni saman við og hitið yfir miðlungshita þar til blandan er heit, ekki gleyma að hræra í stöku sinnum.
3. Hellið að lokum piparmyntudropunum saman við og berið fram.
4. Berið fram með rjóma, sykurpúðum eða jafnvel piparmyntustaf.
5. Ef þú vilt kakóið froðukennt er svo um að gera að hræra blönduna í blandara.