1.
|
Forhitaðu ofninn í 200°C. Klæddu 20x20cm eldfast mót með álpappír og penslaðu það með smjöri. Leyfðu álpappírnum að ná aðeins yfir brúnirnar hvoru sínu megin á mótinu. |
2.
|
Til að gera bláberjablönduna, hrærðu varlega saman öllum innihaldsefnunum með sleif þar til bláberin eru algjörlega hulin. |
3.
|
Til að gera botninn og efsta lagið settu þá saman í aðra skál, smjörið, hveitið, 1.5 dl af ljósa púðursykrinum, lyftiduftið og eggjarauðuna. Merðu þetta saman með gaffli og blandaðu þar til blandan er lík blautum sandi. |
4.
|
Pressaðu um það bil tvo þriðju til þrjá fjórðu af blöndunni í botninn á eldfasta mótinu, gættu vel að því að pressa botninn vel, best er að gera það með höndunum. |
5.
|
Helltu bláberjablöndunni yfir botninn. |
6.
|
Bættu restinni af púðursykrinum (þeim dökka og ljósa) við restina af deiginu og myldu það því næst jafnt yfir bláberjablönduna með því að kremja það í höndunum á þér og mylja það svo. |
7.
|
Bakaðu í ofninum í um það bil 45 mínútur, eða þar til þú sérð bláberin "búbbla" og efsta lagið er orðið gullið. |
8.
|
Skerðu í stykki og berðu fram heitt með uppáhaldsísnum þínum eða leyfðu að kólna við herbergishita og lyftu svo upp úr fatinu með því að halda í álpappírinn sem fer yfir brúnirnar á mótinu. |