1.
|
Hitið ofninn á 200°C. Hrærið smjör og sykur saman. Bætið hunangi út í og hrærið 1 egg saman við í einu. |
2.
|
Blandið þurrefnum saman við ásamt grísku jógúrtinni. |
3.
|
Setjið muffinsform í muffinsmót (fyrir 12) og hellið deiginu í formin. Bakið í miðjum ofni í 15 mínútur og látið kólna. Takið þá úr pappírnum. |
4.
|
Byrjið þá á kreminu. Pressið safann út sítrónunni. Hrærið aðeins í rjómaostinum svo hann sé ekki kekkjóttur. Bætið flórsykri og sítrónusafa út í og því næst rjómanum smátt og smátt (meira eða minna af honum eftir þörfum). |
5.
|
Setjið frostinginn í sprautupoka og sprautið á kökurnar. Skreytið með bláberjadufti og ferskum berjum. |