|
1.
|
Setjið volga mjólk í stóra hræriskál og hrærið léttilega með gaffli þurrkað gerið. Látið standa við stofuhita í sirka 15 mín þar til fer að freyða í skálinni. |
|
2.
|
Bætið bræddu og kólnuðu smjörinu við í skálina og hrærið með króknum í hrærivélinni í sirka mínútu. |
|
3.
|
Bætið við sykrinum á meðan krókurinn heldur áfram að vinna. |
|
4.
|
Bætið helmingnum af hveitinu (sirka 300g) salti og kardimommudropum Kötlu. |
|
5.
|
Bætið í skömmtum rest af hveitinu og látið krókinn vinna í sirka 5 mínútur. Notið sleif til að skafa hliðar skálarinnar ef þarf. |
|
6.
|
Hyljið skálina með plastfilmu eða viskustykki og látið standa í sirka 30 mín eða þar til deigið hefur tvöfaldar stærð sína. |
|
7.
|
Á meðan deigið rís hrærið í fyllinguna, öllu saman. |
|
8.
|
Stráið hveiti á borð og leggjið deigið á, hnoðið það 2-3 sinnum og rúllið það síðan út í langan ferhyrning. |
|
9.
|
Með sleif eða skeið setjið fyllinguna jafnt á allt deigið og „brjótið deigið saman einu sinni“. |
|
10.
|
Notið pizzuhníf eða hníf og skerið deigið í lengjur. |
|
11.
|
Takið hverja lengju fyrir sig og snúið nokkrum sinnum og bindið í hnút. |
|
12.
|
Setjið bökunarpappír á ofnplötu og raðið snúðunum varlega á. |
|
13.
|
Setjið viskustykki á plötuna og leyfið snúðunum að rísa í sirka 30 mín. |
|
14.
|
Stillið ofninn á 200°C |
|
15.
|
Penslið snúðana með hrærðu egginu og bakið snúðana í sirka 10-12 mínútur eða þar til þeir eru gylltir að ofan. |